
Vantar þig lánsfé til að fjármagna verkefnið þitt?
Uppspretta leiðir saman fólk, verkefni og lánsfé. Þú setur fram hugmynd þína og óskir í lánsumsókn á uppspretta.is og kemur verkefninu á framfæri. Með því að setja inn lánsumsókn á Uppsprettu áttu möguleika á að nálgast lánsfé en einnig nýja viðskiptavini sem eru tilbúnir að lána þér til góðra verka og jafnvel kaupa afurðina síðar.
Hvernig virkar Uppspretta?
Lántakandi setur inn upplýsingar um tilefni láns, lánsupphæð, lánstíma og hámarksvexti sem hann er tilbúinn til að greiða. Lánveitendur bjóða síðan í lánið en það geta margir verið á bak við hvert lán. Vextirnir eru því ákveðnir af fólkinu sjálfu. Örlán eru frá 50.000 til 3.000.000. Lánstími getur verið að lágmarki 1 mánuður og að hámarki 36 mánuðir.
Uppspretta tengir saman lánveitendur og lántakendur og miðlar lánum og endurgreiðslum láns á milli þeirra. Uppspretta er leið fyrir almenning og fyrirtæki til að styðja við uppbyggingu og atvinnusköpun á Íslandi með því að veita lán til annars fólks.
Nánari upplýsingar eru á www.uppspretta.is, einnig er hægt að hafa samband í gegnum uppspretta@uppspretta.is eða hringja í 844-1400.
|