29. janúar 2010

Frestur framlengdur

Vegna fjölda áskorana verður frestur vegna bókar framlengdur til 9. febrúar!

 

HANDVERK OG HÖNNUN gefur út bók annað hvert ár. Markmiðið er milliliðalaus og aðgengileg kynning á einstaklingum sem stunda handverk, hönnun og listiðnað á Íslandi. Bókinni er dreift endurgjaldslaust í öll almennings- og skólabókasöfn á landinu, allar ríkisstofnanir, mörg fyrirtæki, öll sveitarfélög, stéttarfélög, til ferðaþjónustuaðila, í sendiráð bæði íslensk og erlend og margir fleiri hafa fengið bókina til varðveislu.

 

Bókin er jafnframt aðgengileg á heimasíðu HANDVERKS OG HÖNNUNAR. Sjá bækur 2006 og 2008 hér 

 

Allir einstaklingar sem vinna við handverk, hönnun og listiðnað og eru með vörur í sölu allt árið annað hvort á vinnustofu eða öðrum sölustað/stöðum geta sótt um skráningu í bókinni.

Fagleg valnefnd fer yfir umsóknir.

 

Hver einstaklingur er kynntur á einni blaðsíðu í bókinni með mynd af einu verki og ítarlegum upplýsingum. Hver síða er einnig sérprentuð á góðan kortapappír í eitt þúsund eintökum. Þátttakendur fá 15 eintök af bókinni auk  kortanna. Kostnaður við þátttöku í þessu verkefni er kr. 35.000.- fyrir hvern einstakling. Möguleiki er á að birta upplýsingar um sölustaði gegn 5.000.- kr. viðbótargjaldi.

 

Skila verður góðri mynd í prentgæðum (300 pt.) ásamt vandlega útfylltri umsókn fyrir 9. febrúar 2010. Ef umsækjendur hafa áhuga á mynda nýjan hlut verður boðið upp á aðstoð við myndatöku.

 

Áætlað er að bókin komi út í mars 2010.

 

Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu HANDVERKS OG HÖNNUNAR sem er opin alla virka daga frá kl. 9.00 – 16.00 

 

Hér er umsóknareyðublað til útfyllingar: athugið að vista þarf skjalið (save as...) og senda sem viðhengi á handverk@handverkoghonnun.is

 


 

Senda á Facebook