14. júní 2012

Námskeið í bókverkagerð

 

Rebecca Goodale kynnir námskeið
BÓKVERKAGERÐ / BOOK ART 24.-26. ágúst 2012

 

Einstakt 3ja daga námskeið fyrir hönnuði, lista- og handverksfólk í gerð bókverka í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi frá föstudegi til sunnudags kl. 9-16.
Bandaríska listakonan Rebecca Goodale er þekkt fyrir einstakar og heillandi bækur þar sem hún víkkar bókarformið út fyrir hefðbundinn ramma í fjölbreytileg þrívíð form. Á námskeiðinu kynnir hún þátttakendum óendanlega möguleika bókverka, jafnt form sem innihald. Á sama tíma sýnir hún verk sín í Gerðubergi.


Hámarksfjöldi þátttakenda: 15 manns

Námskeiðsgjald kr. 48.000-


Skráning á gerduberg@reykjavik.is fyrir 28. júní
Staðfestingargjald kr. 10.000 greiðist við skráningu


Nánari upplýsingar: Margrét Baldursdóttir 575 7717
margret.baldursd@reykjavik.is

 

Menningarmiðstöðin Gerðuberg l Gerðubergi 3-5 l 111 Reykjavík
Sími 575 7700 l gerduberg@reykjavik.is l www.gerduberg.is

 

 

Senda á Facebook