4. maí 2012
Sýningin í Ráðhúsinu í fullum gangi
Í gær opnaði sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta er flott og fjölbreytt sýning og var mikill straumur af fólki í gær þegar opnað var.
Þetta er í sjöunda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir þessari sýningu en í fyrsta sinn að vori til. Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun. Það eru listamennirnir sjálfir kynna vörur sínar. Gróskan og fjölbreytnin er mikil sem fyrr og að þessu sinni sýna 44 aðilar verk sín. Það er gaman að segja frá því að rúmlega helmingur þátttakenda að þessu sinni hefur ekki tekið í sýningunni áður eða 27 aðilar.
Á sýningunni er m.a. fallegt skart úr fjölbreyttum hráefnum, föt, jurtalitað band, handsmíðaðir hnífar, útskurður, keramik og ótal margt fleira. Sjón er sögu ríkari!
Opið:
Föstudagur 4. maí kl. 10 – 19
Laugardagur 5. maí kl. 10 – 18
Sunnudagur 6. maí kl. 10 – 18
Mánudagur 7. maí kl. 10 – 19
Aðgangur ókeypis - verið velkomin! |