26. janúar 2012

Hádegisfyrirlestur - Olivia Plender

Breska myndlistarkonan Olivia Plender fjallar um verk sín og vinnuaðferðir í fyrirlestraröðinni Vinnustofan við myndlistardeild Listaháskóla Íslands.

Fyrirlesturinn er öllum opnir og hefst kl. 12:30 í húsnæði deildarinnar að Laugarnesvegi 91 í Reykjavík. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

 

Olivia Plender (fædd 1977) býr og starfar í Berlín. Hún mun fjalla um myndlist sína og vinnuaðferðir sem eru rannsóknarmiðaðar. Í umfangsmiklum verkefnum hefur hún tekist á við hugmyndafræðileg viðfangsefni sem tengjast sögulegum málefnum, upp á síðkastið málefni sem fjalla um breytingar er varða menntun og samfélagsleg gildi.

Olivia Plender hefur sýnt alþjóðlega, m.a. á sýningunum the British Art Show 10, Hayward Gallery, London (2011); Taipei Biennial, Taipei, Taiwan (2010); Aadieu, Adieu Apa (Goodbye Goodbye Father), Gasworks Gallery (2009); Altermodern: Tate Triennial 2009, Tate Britain; Bucharest Biennial, Bucharest, Romania; The Greenroom, Hessel Museum of Art, CCS Bard, New York, (2008); The Great Transformation, Frankfurter Kunstverein, Frankfurt (2008); Information, Education, Entertainment, Marabou Parken Annex, Stockholm (2007); Tate Triennial, Tate Britain, London (2006); Busan Biennial, Busan, South Korea (2006); BMW: 1X Baltic Triennial of International Art, CAC, Vilnius (2005); Romantic Detachment, PS1/ MoMA, New York (2004).

 

Vinnustofan er íverustaður stöðugrar gerjunar, ígrundunar, tilviljanna, mistaka og úrvinnslu. Á vormisseri munu ólíkir myndlistarmenn leiða viðstadda í gegnum samtal hugar og handa, vinnuferli og aðferðir, í fullvissu jafnt sem efa. Allir eiga þeir sér sína vinnustofu, hvort sem hún er aðgreint rými sem slík ellegar horn á stofuborði, vinnustofa flakkarans sem gerir alla staði og engan að sínum eða skissubók í hendi.

 

 

 

Senda á Facebook