Guðný Guðmundsdóttir Sýningin í kaffihúsi Gerðubergs 22. janúar - 11. apríl 2012
Guðný Guðmundsdóttir leyfir okkur að skyggnast inn í ólíka heima með litríkum klippimyndum sínum í kaffihúsi Gerðubergs.
Á opnun sýningarinnar, sunnudaginn 22. janúar kl. 14, verður Guðný með þuludagskrá þar sem hún fer með óþekktar og gamlar þulur.
Guðný er vel þekkt fyrir rekstur sinn á búðinni Græna Línan sem var til margra ára á Laugaveginum. Þar starfaði hún sem heilsuráðgjafi og seldi húð- og heilsuvörur. Brennandi áhugi Guðnýjar er þó enn til staðar þegar kemur að heilsu og sinnir hún enn ráðgjöf og hefur umboð fyrir húðvörur sem hún selur heima.
Guðný byrjaði fyrir nokkrum árum að klippa myndir úr tímaritum, raða þeim saman og skapa töfrandi myndheima. Hún fann að þetta listform sem opnaðist fyrir henni væri ákveðin þerapía (heilun) og hugleiðsla.
Guðný leggur mikinn metnað í úrklippurnar og að baki hverrar myndar liggur mikil vinna. Hún raðar úrklippunum eftir litatónum og fær þannig innblástur. Þannig veljast úrklippurnar í verkið sem smátt og smátt skapa heildstætt verk. Í hverri mynd er ákveðið þema en það er sameiginlegt með öllum verkum hennar að mannslíkamanum er ekki flíkað eins og gjarnan er gert í auglýsingum.
Vinnan við gerð myndanna er orðin stór þáttur í lífi Guðnýjar og segir hún að í hverju verki sé sál hennar og líf.
Sýningin er opin virka daga kl. 10 - 16 og um helgar kl. 13 - 16. |