3. nóvember 2011

Sýning í Ráðhúsinu 3. - 7. nóv.

Í dag kl. 15 opnar HANDVERK OG HÖNNUN stóra sýningu á íslensku

handverki, listiðnaði og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.

 

Þetta er í sjötta sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir þessum viðburði. Það er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið undanfarin ár og hefur aðsóknin verið mjög mikil.  Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun.  Það eru listamennirnir sjálfir kynna vörur sínar. Gróskan og fjölbreytnin hefur aldrei verið meiri en að þessu sinni og  63 aðilar sýna verk sín.

 

Á fyrsta degi sýningarinnar, þann 3. nóv. verða Skúlaverðlaunin 2011 veitt í fjórða sinn en þau verðlaun eru veitt í samkeppni meðal þátttakenda um besta nýja hlutinn. Verðlaunin eru styrkt af Samtökum Iðnaðarins.

 

Hér er að skoða kynningu á öllum sem taka þátt í sýningunni þetta árið.

 

Styrktaraðilar sýningarinnar í ár eru: Kraum, Valitor og Reykjavíkurborg.

 

 

Opnunartími sýningarinnar er:

 

Fimmtudag 3. nóv. kl. 15 – 19 

studag 4. nóv. kl. 10 – 19 

Laugardag 5. nóv. kl. 10 – 18   

Sunnudag  6. nóv. kl. 10 – 18

Mánudag  7. nóv. Kl. 10 - 19

 

Verið velkomin!

 

Senda á Facebook