20. september 2011

Bókamyndir og myndabækur

Nú stendur yfir sýning á klippimyndum eftir Sigurborgu Stefánsdóttur í Herberginu, sýningarsal Kirsuberjatrésins, Vesturgötu 4 Reykjavík.

Sýningin nefnist ,,Bókamyndir og myndabækur" og samanstendur af 19 myndverkum og 7 bókverkum. 

 

Sýningin er opin virka daga kl 11-18 og kl 11-16 á laugardögum.

Síðasti sýningardagur er 3. okt.

 

Næsta laugardag, þann 1. október munu Tómas R. Einarsson og Gunnar Gunnarsson stilla saman strengi sína, milli klukkan 12 og 14 í Kirsuberjatrénu.

 

Verið velkomin

 

Senda á Facebook