HANDVERK OG HÖNNUN hefur staðið fyrir sýningum Á skörinni frá júní byrjun 2007 eða frá því að starfsemin flutti í Aðalstræti 10. Á þessum tíma hafa um 60 einstaklingar/hópar sýnt mjög fjölbreytt og oft forvitnileg verk. Allar þessar sýningarnar eru skráðar á heimasíðu HANDVERKS OG HÖNNUNAR og þar er líka hægt að skoða ljósmyndir af þessu skemmtilega rými.
Nú er komið að því að auglýsa eftir umsækjendum vegna 2012. Við leitum að íslensku handverki, listiðnaði og nútíma hönnun. Lögð verður áhersla á að þessar sýningar séu bæði nýstárlegar, fjölbreyttar og spennandi.
Skila verður umsóknum í síðasta lagi 9. janúar 2012.
Þeir sem hafa hringt eða sent tölvupóst og spurst fyrir um sýningarrýmið, vinsamlegast staðfestið áhuga ykkar og sendið inn formlega umsókn.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu HANDVERKS OG HÖNNUNAR sem er opin alla virka daga frá kl. 9.00 - 16.00. |