2. september 2010
OPIÐ HÚS Á KORPÚLFSSTÖÐUM
 |
KorpArt hópurinn í Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum í Grafarvogi mun opna vinnustofur sínar laugardaginn 4. sept. frá kl. 13:00 til 17:00.
Gestum gefst tækifæri á að spjalla við listamennina og hönnuðina um verk þeirra, en mikil fjölbreytni er þar ríkjandi, s.s. málverk, leirlist, textíll, hreyfimyndir, grafísk hönnun og landslagsarkitektúr. Kaffi og meðlæti verður til sölu í Rósukaffi á hóflegu verði. Þetta er fyrsta opna húsið á komandi vetri, en í vetur verða opin hús fyrsta laugardag í mánuði að janúar undanskildum, eins og undanfarin ár, með breytilegum sýningum og uppákomum. |
 |
senda frétt á facebook |