8. september 2010
ÍSLENSKA BÚTASAUMSFÉLAGIÐ 10 ÁRA
Bút fyrir bút í 30 ár
 |
Íslenska bútasaumsfélagið stendur fyrir yfirlitssýningunni Bút fyrir bút í 30 ár í Perlunni daganna 10.-19. september.
Sýningin er haldin í tilefni 10. ára afmælis félagsins. Sömuleiðis verða sýnd teppi sem voru saumuð fyrir samkeppni félagsins er heitir Tækifæriskort. Félagið er aðili að EQA sem eru samtök bútasaumsfélaga í Evrópu og var þeim félögum boðið að taka þátt í samkeppninni.
Sýningin verður opnuð föstudaginn 10. september klukkan 17:00 og verður opin á opnunartímum Perlunnar, frá 10:00 til 18:00, alla daga.
|

|
Color Connections 14. - 18. sept.
Félagið sýnir einnig teppi í Tjarnarsal Ráðhússins sem bera yfirskriftina Color Connections. Sú sýning er samstarfsverkefni EQA og sendi hvert land níu teppi í stærðinni 40 x 40 cm í fyrirfram ákveðnum lit. Í hlut Íslands kom að sauma teppi í túrkíslit.
Sýningin verður opnuð þriðjudaginn 14. september klukkan 17:00.
Opnunartímar Ráðhússins eru: virka daga frá 8:00 til 19:00 og um helgar frá 12:00 til 18:00.
|
 |
senda frétt á facebook | |