30. ágúst 2010

JURTALITUN

Að fanga liti jurtanna 


Verið velkomin á fyrsta handverkskaffi haustsins í Gerðubergi miðvikudagskvöldið 1. september kl. 20.

Þetta kvöld kynna Sigrún Helgadóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir jurtalitun. Gestum gefst kostur á hlýða á stutt erindi um töfraheim jurtalitunar og kynnast þannig hvernig lita má garn eða klæði með jurtum úr íslenskri náttúru. Á staðnum verða sýnishorn af jurtum og jurtalituðu garni.

Sigrún er líf- og umhverfisfræðingur en Þorgerður er textíllistakona og kennari. Þær hafa árum saman unnið að jurtalitun og m.a. kennt hana á námskeiðum hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands.

Handverkskaffi í Gerðuberg er fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða upp á notalega stund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og jafnvel tekið í handavinnu. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og stundum sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins.

 Handverkskaffið hefst kl. 20, aðgangur er ókeypis.

senda frétt á facebook

 

 

Senda á Facebook