27. ágúst 2010

Síðasta sýningarhelgi!

Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2010

Nú í sumar standa yfir í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi, sýningar listakvennanna Steinunnar Sigurðardóttur, hönnuðar og Hildar Bjarnadóttur, myndlistamanns.

Sýning Hildar ber heitið ENDURGJÖF en Steinunn nefnir sína sýningu DRESS COLLAGE.

 

Heimilisiðnaðarsafnið er opið alla daga í sumar frá kl. 10.00 - 17.00

  

Sýningin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.


Náttúran í hönnun 

Sýningin Náttúran í hönnun hefur verið opnuð í Ljósafossstöð. Þar verður boðið í ferðalag um hlutgerða náttúru íslenskra hönnuða og skyggnst inn í hugarheim þeirra m.a. með áhugaverðum viðtölum. Þátttakendur eru rúmlega 30 talsins.
Sýningin er opin í allt sumar og er áhugavert fyrir íslenska og erlenda ferðamenn að staldra við í Ljósafossstöð og kynna sér hvernig íslenskir hönnuðir sækja innblástur í náttúruna.

Sýningarstjóri er Hlín Helga Guðlaugsdóttir. 

Sýningin verður opin til 28. ágúst, alla daga vikunnar, frá kl. 13 - 17 virka daga og kl. 13 - 18 um helgar.


Úr hafi til hönnunar

Hönnunarsafn Íslands hefur opnað að Garðatorgi 1, í Garðabæ. Þar stendur nú yfir sýning sem ber heitið “Úr hafi til hönnunar”. Á sýningunni gefst kostur á að skoða fjölbreytt úrval gripa úr roði og fiskleðri eftir íslenska og erlenda hönnuði. Að auki er til sýnis úrval úr safneign sem varpar ljósi á söfnunarsvið safnsins. 

Munirnir á sýningunni koma víða að og eru fjölbreyttir enda er áherslan lögð á að sýna sjálft efnið. Skór, stólar, töskur, útivistarfatnaður, skálar, kjólar, bækur og skartgripir ásamt fleiru eru viðfangsefni þeirra hönnuða og fyrirtækja sem eiga muni á sýningunni, má þar nefna heimsfræg nöfn úr tískuheiminum eins og Karl Lagerfeld og Christian Dior. 

Margir íslenskir hönnuðir og listhandverksfólk hefur notað þetta efni í áraraðir, má nefna Eggert feldskera, Arndísi Jóhannsdóttur í Kirsuberjatrénu, fatahönnuðinn Steinunni Sigurðadóttur og textílhönnuðinn Önnu Gunnarsdóttur á Akureyri. Verk þeirra og fjölda annarra íslenskra og erlendra hönnuða njóta sín vel í nýjum og glæsilegum salarkynnum Hönnunarsafns Íslands. 

Sýningarstjóri er Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands en hönnun sýningarinnar er í höndum Sruli Recht Studio.

 

UPPLÝSINGAR UM FLEIRI SÝNINGAR MÁ FINNA HÉR

 


senda frétt á facebook

 

 

Senda á Facebook