10–23 Viðkomustaðir
Guðmunda Kristinsdóttir sýnir málverk sín. Húnoghún, Skólavörðustíg 17b
10–23 Skúlptúr
Sýning Sigurdísar Hörpu í gluggum verslunar Rauða krossins að Laugavegi 12.
10–22 Kæruleysi
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður sýnir myndskreytingar í handgerðum römmum og heklaðar fígúrur. Laugavegi 48
13–16 Opin vinnustofa
Stella Sigurgeirsdóttir opnar vinnustofu sína. Gamlir stólar og rimlagardínur öðlast nýtt líf í höndum barna! Hverfisgötu 50
13:30–14 Farmers Market – Ný hönnun
Farmers Market kynnir nýjar vörur. Kraum, Aðalstræti.
14–18 Sýning á verkum Heidi Strand
Heidi Strand sýnir textílmyndverk unnin úr þæfðri ull með blandaðri tækni í húsnæði Norræna félagsins. Norræna félagið, Óðinsgötu.
14:30–15 Reykjavík Towel
Reykjavík Towel kynnt af hönnuðum. Kraum, Aðalstræti.
15–17 Páll á Húsafelli – opnun sýningar
Opnun sýningar á verkum Páls á Húsafelli. Við opnunina leikur Páll á steinhörpu sem er hans eigin smíð. Panorama, Ingólfsstræti 1.
15–15:30 Utanum
Eva Vilhelmsdóttir kynnir nýja línu úr íslenskri ull undir merkinu Utanum. Kraum, Aðalstræti.
15–16 Tískusýning við Gömlu höfnina
Gallerí og verslanir við Gömlu höfnina sýna það nýjasta í hönnun. Sædís gullsmiðja, Geirsgötu 5b.
16–17 Arfleifð-Heritage from Iceland
Á tískusýningunni verða sýndar töskur, fylgihlutir og fatnaður úr íslenskum hráefnum. Ferðamálastofa, Geirsgötu 9
17–18 Minn Ásmundur
Björg í Bú, Guðrún, Helga og Edda kynna vinningstillögu í Ásmundarsamkeppni, nýtt púsluspil í anda Ásmundar Sveinssonar. Kraum, Aðalstræti
Fjölmargir fleiri viðburðir á vef Menningarnætur www.menningarnott.is
|

|
senda á facebook |
|