27. ágúst 2010

BOTNÍUR OG BORÐFÆTUR


Sýning Auðar Ingu IngvarsdótturBotníur og borðfætur“ var opnuð á Skörinni, Aðalstræti 10 á Menningarnótt í Reykjavík þann 21. ágúst.

 

Auður Inga lauk námi frá Glasgow School of Art  fyrir tveimur árum. Hún vinnur  aðallega í steinleir sem hún handmótar og rennir. Auður Inga vinnur gjarnan út frá þeirri hugmynd  að enginn hlutur er eins og reynir gjarnan að ýkja það í verkum sínum.

 

Viðfangsefni sýningarinnar „Botníur og borðfætur‟  eru undirstöður hlutana. Undanfarin ár hefur Auður Inga gert svokallaðar botníur en þær hafa ekki fætur heldur liggja á botninum. Auði Ingu langaði til að koma með verk á móti sem standa á fótum. Í því sambandi fór hún að skoða borðfætur og þá sérstaklega fætur á gömlum antikborðum.

 

Sýningin stendur til 14. sept. og er opin alla virka daga kl. 9 - 18 og um helgar kl. 12 – 17.

 

Sjá einnig www.ainga.net

 

senda á facebook

 

 

Senda á Facebook