Á Menningarnótt mun Hönnunarmiðstöð Íslands hafa dyr sínar opnar fyrir gesti og gangandi. Lifandi upptökur frá HönnunarMarsi 2010 auk svipmynda frá hönnunarsýningunum Iceland Contemporary Design sem opnaði á Listahátíð 2009 á Kjarvalsstöðum og í Dansk Design Center í febrúar 2010 og sýningunni Náttúran í hönnun í Ljósafossstöð verða sýndar. Þessar sýningar eru meðal þeirra sem Hönnunarmiðstöðin hefur nýlega staðið fyrir og eru þáttur í að kynna íslenska hönnun á innlendum og erlendum vettvangi.
Verið velkomin í Vonarstræti 4b.
|

|
senda á facebook | |