10. ágúst 2010
Bjarni Sigurðsson keramiker tekur þátt á Frue Plads markaðinum
Dagana 12.-14 ágúst 2010 verður hinn árlegi Frue Plads listhandverksmarkaður haldinn í Kaupmannahöfn. Þetta er í 27. sinn sem hann er haldinn og eru 150 meðlimir í Danske Kunsthåndværkere sem taka þátt. Á markaðinum má finna skartgripi, leir, gler, tréútskurð, textíl og fleira.
Að þessu sinni mun Bjarni Sigurðsson keramiker vera meðal þátttakenda á þessum flotta markaði, sem er sá stærsti á norðurlöndunum.
Frue Plads listhandverksmarkaðurinn stendur í þrjá daga og er aðgangur ókeypis.
|
|
   |
|
|
 |
senda frétt á facebook |
|