9. ágúst 2010

„Það er allt fallegt“ - Málþing, námskeið og sýningar

„Það er allt fallegt“

Málþing, námskeið og sýningar

 

Dagskrá um listamenn á Laugarvatni fyrr og nú 

Laugardaginn 14. ágúst 2010

 

10:00 Listamenn á Laugarvatni fyrr og nú. Málþing, Hótel Eddu, (ML).

10:00 Listmálarinn Þórarinn B. Þorláksson

Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur, forstöðumaður Listasafns Einars Jónssonar.

10:30 Listamaðurinn og Laugarvatnsbóndinn

Hlíf Böðvarsdóttir rifjar upp samskipti fjölskyldna Böðvars Magnússonar og Þórarins B.

Þorlákssonar. Kvikmynd. Umsjón Stefán Magnús Böðvarsson.

10:45 Gesturinn

Hugleiðing um listamenn á Laugarvatni, Jón Özur Snorrason

11:00 Að vera hér!

Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og gestur Gullkistunnar.

11:10 Umræður

Fundarstjóri Harpa Björnsdóttir.

11:45 „Það er allt fallegt“

Opnuð sýning á eftirmyndum af málverkum Þórarins B. Þorlákssonar frá Laugarvatni sem flest eru í eigu Listasafns Íslands. Sýningin er undir berum himni og mun standa í eitt ár.

 

12:00 Súpa og kaffi, verð kr. 1500, óskast pantað við komu.

 

13 – 17 Meðferð vatnslita – leikur einn

Eyvindartungu, kennari Harpa Björnsdóttir

Verð: 4500, efni innifalið og kaffisopi. Nemendur mega gjarnan koma með liti og efni sem þeir

eiga. 12 nemendur hámark.

Skráning: gullkistan@gullkistan.is

 

17:00 LANDscapeING, Raom&Loba

Opnun myndlistarsýningar í Eyvindartungu á verkum listamanna frá Frakklandi og Argentínu.

Raom og Loba eru gestir Gullkistunnar.

 

Dagskráin er styrkt af Menningarráði Suðurlands.

Gullkistan er meðlimur í UPPLITI, menningarklasa uppsveita Árnessýslu.

 

senda frétt á facebook

 

Senda á Facebook