Sýning Helgu R. Mogensen "Skreflur" var opnuð í Listmunahorni Árbæjarsafns þann 31. júlí.
Helga útskrifaðist árið 2007 frá Edinburgh College of Art með fyrstu einkunn í skartgripahönnun. Síðan þá hefur hún verið að sýna í hinum ýmsu galleríum og söfnum á Íslandi og erlendis. Skreflur er heitið á gamalli veiðistöð sem var starfrækt Norður á Ströndum allt fram til 1840. Þaðan kemur flest allur efniviðurinn sem notast er við í verkin á sýningunni, m.a rekaviður, plast og annað smálegt. Til sýnis eru hálsmen, nælur og hringar.
Sýningin stendur til 13 ágúst. |