Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistarmaður
Unnið uppúr erindi sem Hrafnhildur flutti á Málþingi HANDVERKS OG HÖNNUNAR í Norræna húsinu þann 9. mars 2009
|
VSK 101
Þórey Vilhjálmsdóttir viðskiptafræðingur MBA
Fyrirlestur á vegum Hönnunarmiðstöðvar og Hönnunarsjóðs Auroru var haldinn þann 1. okt. 2009.
Þórey fór yfir þau grundvallaratriði sem snúa að hönnuðum varðandi virðisaukaskatt.
Hér er hægt er að kynna sér fyrirlesturinn
|
Gerð viðskiptaáætlana (2008) Gagnlegt rit gefið út af Impru nýsköpunarmiðstöð sem gott er að hafa til hliðsjónar við gerð viðskiptaáætlana. Í ritinu er lesandinn aðstoðaður við að skilgreina hugmyndir sínar og gera áætlanir með það að markmiði að hugmyndin geti orðið að veruleika.
|
|
Markaðsáætlanir (2003) Þetta rit gefið út af Impru nýsköpunarmiðstöð á að aðstoða þá sem vilja á einfaldan og markvissan hátt tileinka sér fagleg vinnubrögð við gerð markaðsáætlana.
|
Vöruþróun (2003) Stöðug vöruþróun er grundvallaratriði í rekstri fyrirtækja. Í þessu riti sem gefið er út af Impru nýsköpunarmiðstöð ef farið í gegnum vöruþróunarferlið á einfaldan og skilmerkilegan hátt. Ferlinu er skipt í tvo hluta; annars vegar að velja hugmyndir til að þróa og hins vegar að þróa hugmyndirnar í markaðshæfa vöru.
|
Þjónustugæði. Samkeppnisforskot og velgengni (2006) Þjónusta skiptir æ meira máli í rekstri fyrirtækja. Á það jafnt við um fyrirtæki sem kalla má hefðbundin þjónustufyrirtæki og fyrirtæki sem framleiða og selja áþreifanlegar vörur. Margar aðferðir eru notað við að meta þjónustugæði, ýmist staðlaðar eða lagaðar að viðfangsefninu hverju sinni. Flestar aðferðirnar eiga það sameiginlegt að lagt er mat á það sem skiptir máli frá sjónarhóli þeirra sem þjónustunnar njóta. Ritið er gefið út af Impru nýsköpunarmiðstöð.
|