13. janúar 2012 03:56

STYRKIR

STYRKIR ÚR ÝMSUM SJÓÐUM   

 

Norræni menningarsjóðurinn - umsóknarfrestur

Norræni menningarsjóðurinn býður upp á fjóra árlega umsóknarfresti framvegis og verður hægt að sækja um allt að 500.000 DKK á hverjum tíma.

Umsóknarfrestir hjá Norræna menningarsjóðnum árið 2013 eru:
1. febrúar
1. apríl
1. september
1. október


 

NORRÆNT SAMSTARF

Nýsköpunarmiðstöð Íslands heldur utan um átaksverkefni um markvissa upplýsingamiðlun um fjármögnunarleiðir innan norræns samstarfs. Markmiðið er að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í samnorrænt styrkfé. Frumkvæði að verkefninu og fjármögnun þess kemur frá Norrænu ráðherranefndinni.

Sjá nánar hér

NORRÆNA MENNINGARGÁTTIN

Upplýsingar um umsóknarfresti vegna styrkja í Ferða og dvalarstyrkjaáætluninna,og menningar og listaáætlunina.

Upplýsingar um styrki til dvalarsetra.

Nánar

Menningar og listaáætlunin opnar fyrir umsóknir frá áhugafólki

Áætlunin mun nú styðja við bakið á áhugafólki á sviði lista og menningar sem og fagfólki.

Hér er hægt að kynna sér skilyrði fyrir styrkþega 


Grænlandssjóður

Hlutverk Grænlandssjóðs er að stuðla að nánari samskiptum Íslendinga og Grænlendinga og veitir sjóðurinn styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttasýninga og annarra málefna á sviði lista, vísinda og tæknimála. Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands og er árlegri ávöxtun hans varið til styrkveitinga.

Umsóknum óskast beint til stjórnar Grænlandssjóðs.

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar má finna á vef Mennta-og menningarmálaráðuneytisins


Listamannalaun / Starfslaun listamanna

Starfslaun listamanna eru veitt úr fjórum sjóðum: Launasjóði myndlistarmanna, Launasjóði rithöfunda, Tónskáldasjóði og Listasjóði.
Listasjóður veitir starfslaun og styrki er svara til 300 mánaðarlauna.
Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári (að hausti). Eyðublöð fást á skrifstofu og á vef stjórnar listamannalauna Umsóknum skal skila á skrifstofu stjórnar listamannalauna, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.

 

MENNINGARSJÓÐIR 

 

KYNNINGARMIÐSTÖÐ ÍSLENSKRAR MYNDLISTAR

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar styrkir íslenska myndlistarmenn til starfa og sýningahalds erlendis. Listamenn geta sótt um stærri styrki, að hámarki kr. 400 þúsund, fyrir umfangsmikil verkefni áætluð með lengri fyrirvara eða smærri styrki, að hámarki kr. 60 þúsund, vegna umfangsminni verkefna með skemmri fyrirvara.

Umsókn að berast a.m.k. 40 dögum áður en verkefni hefst (s.s. opnun sýningar eða upphaf ferðar ).

Ef fleiri en einn listamaður sækja um vegna sama verkefnis er fagráðinu heimilt að fjalla um umsóknirnar sem eina. Að hámarki verða veittir tveir styrkir vegna sama verkefnis. 6 stærri styrkir verða veittir á árinu 2012.

Sjá nánar á hér.

HLAÐVARPINN - MENNINGARSJÓÐUR KVENNA Á ÍSLANDI

Hlaðvarpinn, er sjóður sem stofnaður er af hluthöfum Hlaðvarpans ehf. til styrktar menningarmálum kvenna á Íslandi. 
Markmið sjóðsins er að styrkja menningarstarfsemi kvenna sem beinist að því að greina, efla, varpa ljósi á og breyta stöðu kvenna í íslensku samfélagi. Með menningarstarfsemi er átt við hvers kyns listir, rannsóknir og kynningu á menningu kvenna.
Listir, rannsóknir og kynning á menningu kvenna nær til skrifa, sjónlista, sýninga, tónleika, útgáfu, uppákoma, kvikmyndagerðar, þáttagerðar, námskeiða, ráðstefna og hátíða sem tengjast menningarmálum sem og annað það sem fellur að markmiðum sjóðsins. Rannsóknir geta náð til einstakra þátta í menningu kvenna, menningarviðburða, einstakra verka, félaga og einstaklinga sem lagt hafa mikilvægan skerf til menningar kvenna.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Hlaðvarpans: www.hladvarpinn.is

MUGGUR

Muggur er sjóður sem Menningarmálanefnd Reykjavíkur, Samband íslenskra myndlistarmanna og Myndstef hafa stofnað og hefur Sambandi íslenskra myndlistarmanna verið falið að annast umsýslu hans. Hlutverk sjóðsins er að styrkja myndlistarmenn til tímabundinnar dvalar erlendis vegna sýningar, vinnustofu eða annars sambærilegs myndlistarverkefnis. Með þeim hætti er sjóðnum ætlað að efla myndlistarstarf í Reykjavík og styrkja ímynd Reykjavíkurborgar sem framsækinnar menningarborgar á heimsvísu. Stofnun sjóðsins er liður í því að gera Reykjavíkurborg að vettvangi alþjóðlegra listastrauma.

Auglýst er eftir umsóknum til dvalar erlendis vegna:
myndlistarsýningar
vinnustofudvalar / þátttöku í verkstæði
annars myndlistarverkefnis

Umsóknarfrestir fyrir Mugg 2013 eru:

8. febrúar vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. mars - 31. ágúst 2013

1. júlí vegna verkefna sem hefjast á tímabilinu 1. sept, - 28. feb, 2013

Sjá nánar á heimasíðu SÍM

FERÐASJÓÐUR MUGGS

Ferðasjóður Muggs er sjóður sem Samband íslenskra myndlistarmanna, Höfuðborgarstofa og Icelandair hafa stofnað til þess að styrkja ferðir myndlistarmanna sem eru fullgildir félagar í SÍM. Sömu skilyrði gilda um Ferðasjóð Muggs og Mugg, auk þess er skilyrði að verkefnið sé sýnilegt og að það geti að mati sjóðsstjórnar styrkt ímynd Reykjavíkur sem uppsprettu fyrir öflugt og framsækið myndlistarlíf.

Sjá nánar á heimasíðu SÍM

MENNINGARSJÓÐUR LANDSBANKANS

Menningarsjóður Landsbankans

Verið er að endurskoða starfsemi Menningarsjóðs Landsbankans frá grunni. Verkefni hans hafa verið að styrkja verðug verkefni á sviði mannúðar, menningar, menntamála, nýsköpunar, umhverfismála og íþrótta- og æskulýðsmála.

Hægt er að sækja rafrænt um styrk úr Menningarsjóði Landsbankans hér.


Stuðningsverkefni SJÓVÁ 

Sjóvá veitir árlega styrki til aðila sem vinna að ýmsum góðum málefnum í þágu samfélagsins.

Megináhersla er lögð á að s

tyrkja verkefni sem hafa forvarnagildi og fer um helmingur styrktarfjárins til slíkra verkefna. Auk þess styrkir félagið ýmis góðgerðamál, íþrótta- og menningarstarf.
Sjá nánar á heimasíðu Sjóvá


 

SAMFÉLAGSSJÓÐUR VALITOR

Samfélagssjóður Valitor hefur starfað óslitið frá árinu 1992.  Þegar sjóðurinn var stofnaður hét félagið  Greiðslumiðlun – Visa Ísland og bar sjóðurinn nafnið Menningarsjóður Visa. Við vorúthlutn sjóðsins í maí 2011 var nafni hans breytt í Samfélagssjóð Valitor til samræmis við nafn félagsins og til að endurspegla tilgang hans.

Hlutverk sjóðsins er að styðja margvísleg menningar-, líknar- og samfélagsmál.

 

Umsóknarfrestur í sjóðinn er til 1. apríl og 1. október ár hvert.

Umsóknum skal fylgja glögg og greinargóð lýsing á markmiði eða viðfangsefni, þó ekki meira en ein vélrituð síða að lengd. Prófskírteini, umsagnir eða önnur gögn eru frábeðin.

Nánari upplýsingar má finna hér.


 

SKELJUNGUR - styrkir

Skeljungur veitir styrki til samfélagslegra málefna á hverju ári. 

Innsendar styrkbeiðnir eru teknar fyrir mánaðarlega og svör gefin um hvort styrkur verður veittur eður ei. 

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu Skeljungs.

TM -  Tryggingarmiðstöðin

TM leggur ríka áherslu á verkefni sem tengjast forvörnum og hefur TM ekki að venju að styrkja einstaklinga, nemendur eða starfsmannafélög til náms, vegna íþrótta- og/eða utanlandsferða, kosningaherferðir nemenda og/eða stjórnmálaflokka.

Farið er yfir allar styrkbeiðnir á fundi markaðssviðs í byrjun hvers mánaðar. Öllum umsóknum er svarað.

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu TM.

BORGUN

Auglýsinga- og styrktarbeiðnir

Borgun styður ötullega við margvísleg málefni í nafni MasterCard og annarra vörumerkja sem félagið hefur yfir að ráða.

Fundað er vegna styrktarbeiðna einu sinni í viku og er öllum beiðnum svarað í kjölfar þess.

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu Borgunar

POKASJÓÐUR VERSLUNARINNAR

Þann 1. janúar 2002 varð sú breyting á að nafni Umhverfissjóðs verslunarinnar var breytt í Pokasjóð verslunarinnar og um leið fékk sjóðurinn nýtt hlutverk. Pokasjóður úthlutar ekki eingöngu fé til umhverfismála heldur einnig til annarra verkefna sem heyra undir almannaheill. Má þar nefna verkefni eins og umhverfismál, menningu, listir, íþróttir og mannúðarmál.

Athugið að aðeins er hægt að sækja um á heimasíðu sjóðsins www.pokasjodur.is en þar má einnig finna allar upplýsingar um sjóðinn, fyrirkomulag og styrki.

Menningarsjóður VÍS

Hér gefst félagasamtökum, einstaklingum og fyrirtækjum færi á að senda okkur beiðni um hvers konar auglýsingar, styrkbeiðnir og/eða samstarfssamninga. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að vinna umsóknina eins nákvæmlega og kostur er.

Nálgast má umsóknareyðublað á heimsíðu VÍS


Smáverkefnasjóður landbúnaðarins

Smáverkefnasjóður landbúnaðarins (www.bondi.is) er nokkurs konar undirdeild í Framleiðnisjóði og hefur veitt styrki til margháttaðara verkefna sem meðal annars snerta handverk o.fl.

Nánari upplýsingar: www.bondi.is 
Bændasamtök Íslands - Bændahöllinni v/Hagatorg - Reykjavík


MENNINGARRÁÐ AUSTURLANDS

Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og Menntamálaráðuneytisins um menningarmál, frá 14. maí 2001. Veita á styrki til eflingar menningarstarfs á Austurlandi.


Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Austurlandi geta sótt um styrk til margvíslegra menningarverkefna, en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.
Umsóknum skal skila til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á skrifstofum sveitarfélaga og á heimasíðunni www.menningarrad.is
Þar er einnig að finna úthlutunarreglur og ýmsar aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur.
Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir menningarfulltrúi í síma 471 2990, 860 2983 eða með tölvupósti signy@austurbru.is

MENNINGARRÁÐ VESTURLANDS

Menningarráð Vesturlands úthlutar fjármagni til menningarverkefna á grundvelli umsókna og gerir skriflega samninga um skyldur styrkhafa vegna þeirra verkefna sem hljóta styrk.

Taka skal m.a. mið af því að:

-   efla samstarf innan samstarfssvæða Vesturlands um menningarmál; 

-   efla menningartengda ferðaþjónustu á Vesturlandi og styðja sérstaklega við verkefni sem laðað geta að ferðamenn;

-   efla starfsemi á sviði sagnahefðar;

-   styðja við menningarhátíðir og viðburði í því skyni að auka menningarlega fjölbreytni;

-   auka stuðning við menningarstarf ungs og aldraðs fólks;

-   stofna til samstarfs við þjóðmenningarstofnanir;

-   efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu og menningartengdri ferðaþjónustu;

-   styðja við metnaðarfulla menningarstarfsemi sem er landsvæðinu til farsældar;

-   efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.

Hér er hægt að fylla út umsókn um styrk.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er áhættufjárfestir sem tekur virkan þátt í þróun og vexti atvinnulífsins með því að fjárfesta í vænlegum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. 

Nánari upplýsingar:

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins  www.nsa.is

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni.

Nánar um nýsköpunarsjóð námsmanna og fleiri sjóði má sjá á www.rannis.is

Byggðastofnun

Byggðastofnun veitir styrki til nýsköpunar í atvinnulífi á landsbyggðinni. Þar má m.a. nefna vöruþróun og markaðssetningu, könnun á nýjum atvinnukostum, afþreyingu í ferðaþjónustu, útflutningsverkefni og fleira af því tagi sem kallað hefur verið mjúkar fjárfestingar.

Meginreglan hefur verið sú að styrkja ekki fjárfestingar í húsnæði og vélum í hefðbundnum atvinnugreinum.

Byggðastofnun:  www.byggdastofnun.is

Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er að hvetja til nýsköpunar og efla framgang nýrra hugmynda í íslensku atvinnulífi. Nýsköpun er forsenda fyrir fjölbreytni íslensks atvinnulífs og undirstaða sterkrar samkeppnisstöðu þess.

Á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar er að finna yfirlit yfir fjölmarga styrki og stuðningsmöguleika sem í boði eru.

Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til smærri viðfangsefna og vegna snjallra nýsköpunarhugmynda frumkvöðla og lítilla fyrirtækja á öllu landinu. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar.

Framtak: Styrkupphæð allt að kr. 3.000.000. Styrkur til þróunar á þjónustu eða vöru í starfandi fyrirtækjum á landsbyggðinni.

Skrefi framar: Styrkupphæð allt að kr. 600.000.Styrkur til að kaupa á ráðgjöf til nýsköpunar og umbóta í rekstri fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni.


Atvinnumál kvenna

Síðan 1991 hefur styrkjum til atvinnumála kvenna verið úthlutað frá Félags- og tryggingamálaráðuneyti. Í ár verða 30 milljónir til úthlutunar til fjölbreyttra verkefna. Skrifstofa Atvinnumála kvenna er í aðalstöðvum Vinnumálastofnunar í Kringlunni 1, og er símanúmerið 515-4856. Sjá heimasíðuna www.atvinnumalkvenna.is


Menning 2000

Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar Evrópusambandsins

Á þessari heimasíðu er að finna upplýsingar um Menningu 2000 / Culture 2000 menningaráætlun Evrópusambandsins og upplýsingaþjónustu menningaráætlunar Evrópusambandsins, Cultural Contact Point á Íslandi.
Menningaráætlunin veitir styrki til verkefna í öllum listgreinum  og á sviði menningararfleifðar fyrir utan að styrkja starfsemi evrópskra tengslaneta og menningarstofnana.
www.evropumenning.is


NORRÆNIR SJÓÐIR 

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn auglýsir ferðastyrki

Frestur til að sækja um ferðastyrki frá Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum rennur út 1. febrúar næstkomandi. Styrkupphæðin er 7000 sænskar krónur.

Styrkurinn er veittur einstaklingum sem eiga í sænsk-íslenskum samskiptum  hvort sem þau byggja á grunni menningarmála, menntunar eða rannsókna. Umsækjendur þurfa að gera grein fyrir dagskrá ferðarinnar og veita upplýsingar um tengilið í hinu landinu.

Frekari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.norden.se/island

Norske Kunsthåndverkeres stipend

til fremme av teoretiske studier innen kunsthåndverk

Stipendet kan søkes av masterstudenter innen

-kunsthistorie

-visuell kultur

-kunstkritikk- og kulturformidling

-kunstfag

på universitets-/høgskolenivå, eventuelt forskere som skal skrive PhD-avhandlinger eller andre forskningsprosjekter relatert til faget kunsthåndverk. Søker må ha fått godkjent sin prosjektbeskrivelse ved sin respektive utdanningsinstitusjon.

Formålet med stipendet: Å stimulere til forskning i kunsthåndverkets historie, teori og kritikk, både i samtid og fortid. Ellers står studenten fritt i valg av tema. Stipendet kan fra og med 2010 mottas av studenter fra alle de nordiske land, men oppgaven må skrives på norsk, svensk, dansk eller engelsk.

Stipendet er på inntil kr 50 000,- og tildeles av Norske Kunsthåndverkeres (NK) styre etter søknad. Søknadsfrist er 1. februar hvert år. Søknadsskjema finnes på www.kunsthandverk.no, og kan ellers fås ved henvendelse til Norske Kunsthåndverkere, Rådhusgaten 20, 0151 Oslo, ved formidlingskonsulent Synnøve Vik, e-post: synnove.vik@kunsthandverk.no  tlf. 22 91 02 68.

Norske Kunsthåndverkere (NK) kan etter nærmere avtale benytte hele eller deler av oppgaven.

Norske Kunsthåndverkere er en landsomfattende organisasjon for profesjonelle utøvere av faget kunsthåndverk. Organisasjonen ble etablert som fagorganisasjon i 1975.

For mer informasjon se www.kunsthandverk.no

Norræni menningarsjóðurinn - Nordisk kulturfond

Markmið sjóðsins er að stuðla að samstarfi milli minnst þriggja Norðurlanda. Starfsemi sjóðsins nær til menningar í almennum skilningi, lista, menntunar og rannsókna. Veittir eru styrkir til verkefna á sviði lista. Sjóðurinn styrkir aðallega menningarsamstarf á Norðurlöndum. Einnig eru veittir styrkir til samstarfsverkefna milli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna og Norð-vestur Rússlands eða milli Norðurlandanna og annarra Evrópulanda. Þó verða alltaf að minnsta kosti þrjú norræn lönd að taka þátt.
Umsóknir á rafrænu formi um allt að 100 000 DKK er hægt að senda inn til sjóðsins allt árið um kring nema í júní, júlí og desember. Umsækjandi má vænta svars eftir 6 -10 vikur. Umsóknir á fylla út á eyðublöð sjóðsins. Geti umsækjandi, sem sækir um allt af 100 000 DKK, ekki afhent umsókn á rafrænu formi skal hann sækja um fyrir 1. febrúar eða 1. september. 

Nánari upplýsingar má finna á vefnum:  http://www.nordiskkulturfond.org/


Menningarsjóður Íslands og Finnlands

Markmið sjóðsins er að efla menningartengsl milli Finnlands og Íslands. Sjóðurinn veitir ferðastyrki og aðrir styrki, fyrst og fremst til einstaklinga, en í einstaka tilvikum einnig til samtaka eða stofnanna. Árleg fjárhæð sem úthlutað er, er um það bil 25.000 ? Um 25 styrkir eru veittir árlega. Þeir geta verið mismunandi háir frá 500 upp í 2000 ? Umsóknarfrestur er 28. febrúar ár hvert. Umsóknum skal skila á sérstöku eyðublaði sem nálgast má hjá ritara sjóðsins.

Heimasíða: www.hanaholmen.fi  

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn var stofnsettur árið 1995 af ríkisstjórnum Svíþjóðar og Íslands. Hlutverk sjóðsins er að efla sænsk-íslenskt samstarfs, gagnkvæm menningarskipti og upplýsingamiðlun um sænska og íslenska menningu og samfélag. Þetta er gert með því að veita styrki og stuðning við verkefni einstaklinga og samtaka á Íslandi og í Svíþjóð. Sjóðurinn styrkir fyrst og fremst verkefni sem tengjast menningu, menntun og rannsóknum, en getur einnig styrkt önnur verkefni sem miða að því að auka þekkingu eða tengsl milli landanna. Umsóknarfrestur: 1. febrúar Upplýsingar um sjóðinn og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins.

Heimasíða: www.norden.se/island.asp


 

Sjóður fyrir danskt-íslenskt samstarf

Í starfsreglum sjóðsins segir að hann skuli stuðla að skilningi og samstarfi milli Danmerkur og Íslands á menningarsviðinu og öðrum sviðum. Styrkir eru meðal annars veittir til starfs- og námsdvalar í Danmörku eða á Íslandi, til faglegrar menntunar, til leikhópa, listsýninga og annars sem miðar að því að vekja áhuga Íslendinga á Danmörku og Dana á Íslandi. Árlegt fjármagn til ráðstöfunar, eru vextir af höfuðstól sjóðsins um 300.000 danskar krónur. Flestir styrkir eru um 5.000 – 20.000 danskar krónur, en stærri styrkir eru einnig veittir til einstakra verkefna. Umsóknir eru metnar tvisvar á ári á stjórnarfundum í maí og nóvember. Umsóknarfrestir: 15. apríl og 15. október.

Heimasíða: www.fdis.dk


Ferðastyrkir til félagasamtaka á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. 

Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið veita ferðastyrki til frjálsra félagasamtaka á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum.   
Styrkurinn er veittur til fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem þurfa að sækja samnorrænar ráðstefnur, fundi eða samkomur til Norðurlandanna. Þátttakendur þurfa að vera frá minnst þremur norrænum löndum. 

Nánari upplýsingar á vef Norræna hússins. Þar má einnig finna upplýsingar um ýmsa aðra norræna og íslenska styrki til menningar- og menntamála. 


Kulturkontakt Nord

www.kknord.org


Sjóður Clöru Lachmann

www.claralachmann.org 


AÐRIR ERLENDIR SJÓÐIR  

 

Haystack listastyrkur

Haystack Mountain School of Crafts heldur á hverju sumri námskeið fyrir listafólk hvaðanæva að úr heiminum.
Til að sækja um Haystack listastyrkinn þarf að leggja inn eftirfarandi gögn:

1. Útfyllta umsókn á ensku.
2. Prófskírteini úr því námi sem að umsækjandi hefur lagt stund á.
3. Meðmælabréf í lokuðu umslagi.
4. Sýnishorn af verkum umsækjanda, t.d. ljósmyndir.

Umsóknin er hér: Haystack-umsókn

Styrkurinn er kynntur á heimasíðu Íslensk - ameríska félagins www.iceam.is

European Cultural Found

Ýmsir styrkir sjá heimasíðuna www.eurocult.org

Ferðastyrkur ECF: www.eurocult.org/grants/step-beyond-travel-grants


 

 

2. mars 2011 03:47

NÁMSKEIÐ OG FRÆÐSLA

FRÆÐSLA - SMELLTU HÉR

NÁMSKEIÐ

 

 

 

 

 

ENDURMENNTUNARSKÓLI TÆKNISKÓLANS

Háteigsvegi (gamli Sjómannaskólinn), 105 Reykjavík

Sími: 514 9602

Netfang: endurmenntun@tskoli.is

Veffang beint á námskeið: http://www.tskoli.is/namskeid/


 

HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN

Nethyl 2E - 110 Reykjavík - s. 895-0780 / 551-7800 - hfi@heimilisidnadur.is 

Upplýsingar og skráning mánudaga til föstudaga kl. 12.00-16.00

Sjá upplýsingar um námskeið hér: www.heimilisidnadur.is


 

HANDVERKSHÚSIÐ

Handverkshúsið stendur fyrir fjölbreyttum handverksnámsskeiðum.

Handverkshúsið, Bolholti 4, 105 Reykjavík

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni : www.handverkshusid.is  


 

TEXTÍLSETUR ÍSLANDS

Textílsetur Íslands, Kvennaskólanum á Blönduósi heldur fjölbreytt og spennandi námsskeið.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.textilsetur.is


MYNDLISTASKÓLI REYKJAVÍKUR

Skemmtileg námskeið í Myndlistaskóla Reykjavíkur.

Hér má skoða lista yfir námskeið í boði.

MYNDLISTASKÓLINN Á AKUREYRI

Margvísleg námskeið fyrir fullorðna. Námið er einstaklingsmiðað og áhersla lögð á að mæta ólíkum þörfum nemenda með sveigjanlegu námsframboði á sviði teiknunar, málunar, og hönnunar.

Kynnið ykkur nánar á heimasíðu skólans


PUNKTURINN AKUREYRI

Í Handverksmiðstöðinni Punktinum eru haldin fjölbreytt og skemmtileg námskeið.

Kíkið á heimasíðu Punktsins og kynnið ykkur framboðið


NÁMSFLOKKAR HAFNAFJARÐAR

Ýmis námskeið í handverki og listum eru haldin hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar.

NÁLIN HANNYRÐAVERSLUN

Í Nálinni eru haldin fjölbreytt og skemmtileg námskeið.

Sjá upplýsingar um námskeið hér 


STORKURINN GARNVERSLUN

Ýmis skemmtileg námskeið eru haldin í Storkinum.

Sjá upplýsingar um námskeið sjá hér

 

SKALS HÅNDARBEJEDSSKOLE

Hjá Skals Håndarbejedsskole í Danmörku eru fjölbreytt námskeið í boði eru allt árið um kring . 

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.skalshaandarbejdsskole.dk  


 

 

INTERNATIONAL RESEARCH CENTER

Hjá International Ceramic Research Center í Skælskør í Danmörku eru námskeið í boði eru allt árið um kring.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni  www.ceramic.dk

 

 

 

 

 

 

  

 

 

2. mars 2011 03:30

ERLENT FRÉTTABRÉF

 

2011

 

2010

 

meira...
10. júní 2010 11:43

FRÆÐSLA

FRÆÐSLA - ýmis fræðsluerindi 

 

 


Hvernig gerum við góða ferilskrá

Hrafnhildur Sigurðardóttir myndlistarmaður

Unnið uppúr erindi sem Hrafnhildur flutti á Málþingi HANDVERKS OG HÖNNUNAR í Norræna húsinu þann 9. mars 2009

Gerð ferilskráa á pdf formi


VSK 101

Þórey Vilhjálmsdóttir  viðskiptafræðingur MBA

Fyrirlestur á vegum Hönnunarmiðstöðvar og Hönnunarsjóðs Auroru var haldinn þann 1. okt. 2009.

Þórey fór yfir þau grundvallaratriði sem snúa að hönnuðum varðandi virðisaukaskatt.

Hér er hægt er að kynna sér fyrirlesturinn


 

Gerð viðskiptaáætlana (2008)
Gagnlegt rit gefið út af Impru nýsköpunarmiðstöð sem gott er að hafa til hliðsjónar við gerð viðskiptaáætlana. Í ritinu er lesandinn aðstoðaður við að skilgreina hugmyndir sínar og gera áætlanir með það að markmiði að hugmyndin geti orðið að veruleika.

Hér er ritið á pdf formi


 

Stofnun fyrirtækja. Formreglur, réttindi og skyldur (2005)
Bókin er gefin út af Impru nýsköpunarmiðstöð í samvinnu við Ax hugbúnaðarhús og Háskólann í Reykjavík.

Hér er ritið á pdf formi


 

Markaðsáætlanir  (2003)
Þetta rit gefið út af Impru nýsköpunarmiðstöð á að aðstoða þá sem vilja á einfaldan og markvissan hátt tileinka sér fagleg vinnubrögð við gerð markaðsáætlana.

Hér er ritið á pdf formi 


 

Vöruþróun  (2003)
Stöðug vöruþróun er grundvallaratriði í rekstri fyrirtækja. Í þessu riti sem gefið er út af Impru nýsköpunarmiðstöð ef farið í gegnum vöruþróunarferlið á einfaldan og skilmerkilegan hátt. Ferlinu er skipt í tvo hluta; annars vegar að velja hugmyndir til að þróa og hins vegar að þróa hugmyndirnar í markaðshæfa vöru.

Hér er ritið á pdf formi


 

Þjónustugæði. Samkeppnisforskot og velgengni (2006)
Þjónusta skiptir æ meira máli í rekstri fyrirtækja. Á það jafnt við um fyrirtæki sem kalla má hefðbundin þjónustufyrirtæki og fyrirtæki sem framleiða og selja áþreifanlegar vörur. Margar aðferðir eru notað við að meta þjónustugæði, ýmist staðlaðar eða lagaðar að viðfangsefninu hverju sinni. Flestar aðferðirnar eiga það sameiginlegt að lagt er mat á það sem skiptir máli frá sjónarhóli þeirra sem þjónustunnar njóta. Ritið er gefið út af Impru nýsköpunarmiðstöð.

Hér er ritið á pdf formi