Bush, Nancy: Folk Socks: The History & Techniques of Handknitted Footwear. Interweave Press, 1994. 120 bls., m. litmyndum.
Þessi bók gæti verið kölluð "litla alfræðibókin um sokka". Í fyrri hluta bókarinnar er sagt frá uppruna sokksins og svo er saga þessa þarfaþings rakin með hjálp fornleifafræði og skriflegra heimilda. Nokkrir kaflar eru helgaðir frásögnum um sokkaprjónahefðir í Evrópulöndum. Í seinni hluta bókarinnar eru uppskriftir að nokkrum gerðum sokka.