ART OF FAIR ISLE KNITTING, THE

Feitelson, Ann: The Art of Fair Isle Knitting: History, Technique, Color and Patterns. Interweave Press, 1996. 183 bls., m. litmyndum.

 

Alhliða verk um prjónalist í Hjaltlandi. Þar er að finna sögu listarinnar á eyjunni, nákvæmar lýsingar á prjónaaðferðum, kafla um litasamsetningar og uppskriftir að dæmigerðum mynstrum. Byrjun bókarinnar getur einnig verið áhugaverð fyrir þá sem ekki  fást við prjónalist, því þar er sagt frá veðri, skapi eyjaskeggja, lifnaðarháttum þeirra og fleiru á líflegan hátt.