ÍSLENSK HÚSGÖGN - AGUSTAV

12.07.18 - 25.10.18

AGUSTAV

Íslensk húsgögn, hönnun og framleiðsla

 Húsgagnahönnunar- og framleiðslufyrirtækið AGUSTAV sýndi falleg og vönduð húsgögn hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Eiðistorgi. 

 agustav - íslensk húsgögn, hönnun og framleiðslaagustav - íslensk húsgögn, hönnun og framleiðsla

AGUSTAV er húsgagnahönnunar- og framleiðslufyrirtæki starfrækt á Íslandi, það er rekið af hjónunum Gústavi Jóhannssyni og Ágústu Magnúsdóttur. Allar vörur AGUSTAV, stórar sem smáar, eru hannaðar og smíðaðar af ástríðu fyrir vönduðu handverki og tímalausri hönnun. AGUSTAV vinnur með heildstætt hönnunar- og framleiðsluferli þar sem notagildi og fagurfræði kallast á. Fyrsta vara AGUSTAV, Bókasnaginn, er verðlaunuð hönnunarvara og hefur verið seldur um gjörvallan allan heim. Umfjallanir um AGUSTAV hafa birst í heimsþekktum tímaritum og blöðum s.s. Vogue, Tatler Magazine, GQ, Berlingske Business ofl. AGUSTAV leggur mikið uppúr umhverfisvænni framleiðslu og gróðursetur tré fyrir hverja selda vöru. 

AGUSTAV
Verkstæði og sýningarrými
Funahöfða 3, 110 Reykjavík
s. 823 0013

Nánari upplýsingar má finna á www.AGUSTAV.is 

info@agustav.com

Facebook: @AGUSTAVfurniture

Instagram: @AGUSTAVfurniture