Sólarslóð - leiðsögn í Kópavogi

Brynja Sveinsdóttir, verkefnastjóri safneignar og miðlunar Gerðarsafns, kynnir Sólarslóð, nýtt vegg verk dönsku myndlistarkonunnar Theresu Himmel á Hálsatorgi við Hamraborg í Kópavogi þann 7. ágúst 2019, kl. 12:15 - 13:00

Sólarslóð sýnir hreyfingu sólarinnar yfir eins árs tímabil með tólf brotalínum sem teikna upp hin óskýru mörk á milli sólarljóss og skugga sem varpast á vegg Hálsatorgs. Hver brotalína áætlar hæstu stöðu sólar á 21.degi hvers mánaðar ársins. Hver lína er máluð með hvítri vegamálningu sem blönduð er örsmáum glerperlum. Þegar sólin skín á vegginn virkjast því listaverkið og perlurnar endurspegla hin síbreytilegu sjónarhorn sem myndast á milli sólarinnar og áhorfandans. Þegar sólar nýtur ekki við, minnir verkið okkur á hringrás sólarinnar. Hin hvíta sindrandi vegamálning vísar á sama tíma til annarskonar hryns; umferðarinnar sem flæðir undir Hálsatorg, í kringum brúna og inn í hversdaginn.

Að lokinni kynningu á verkinu býðst gestum að fylgja Brynju yfir á Gerðarsafn þar sem hún fræðir gestu um annað verk Theresu: Innanhús framleiðsla I-III sem hefur bein tengsl við Sólarslóð og er unnið með sömu framleiðendum og Gerður Helgadóttir vann með í lifanda lífi.

Viðburðurinn er gestum að kostnaðarlausu og frítt er inn á safnið.