Skáldað í tré, viðsnúningur í rennibekk

Sýning Félags trérennismiða í Borgarbókasafninu í Árbæ
Sýningin hefur verið framlengd til 15. júni 2020

Á sýningunni er margt fallegra muna. Þeir eru afrakstur vinnu félagsmanna í Félagi trérennismiða á Íslandi.
Félagið hefur nú starfað í á þriðja áratug og eru félagsmenn um hundrað og áttatíu talsins. Renndir gripir af ýmsu tagi verða á sýningunni eftir félagsmenn. Þeir munu þó ekki láta sér nægja að sýna gripi heldur ætla þeir einnig að segja frá vinnunni við rennslið og renna gripi á staðnum.

Til stóð að sýnendur myndu segja frá vinnunni við rennslið og jafnvel renna gripi á staðnum en því var frestað vegna covid19 ráðstafana.
Vonast er til að því orðið seinni part sýningartímabilsins
Verið velkomin!

Sjá nánar á vef Borgarbókasafnsins