Sigurbjörg Stefánsdóttir opnar sýninguna VETRARMYNDIR

Verið velkomin á sýningaropnun Sigurborgar Stefánsdóttur í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 25. jan. kl. 17.
Unnur Birna og Sigurgeir Skafti flytja nokkur lög við opnunina.

Sigurborg Stefánsdóttir stundaði nám í Kaupmannahöfn og útskrifaðist frá Skolen for Brugskunst ( Danmarks Design skole ) árið 1987.
Sigurborg hefur fengist við myndskreytingar og bókagerð samhliða málverki og var kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1989-2000 og stundakennari við Listaháskóla Íslands 2000 - 2011. Hún hefur bæði fengið styrki til námsdvalar í Bandaríkjunum og Japan. Hún hefur haldið 14 einkasýningar, á Íslandi, Danmörku og Ítalíu og tekið þátt í fjölda samsýninga víðsvegar um heim.

Sýningin stendur til 3. mars 2018.

Heimasíða Sigurborgar

Nánar um viðburðinn hér