sextándi - sýningaropnun

Margrét Kröyer opnar sýninguna - sextándi - 16. nóvember 2019 kl. 14-17 í Gallerí Hvítspóa, Akureyri

Margrét (1967) er Akureyringur, útskrifaðist af myndlistabraut Menntaskólans á Akureyri 1987, grafískur hönnuður frá Myndlistaskólanum á Akureyri 1996 og hefur starfað við hönnun meðfram öðru síðan og rekið eigið fyrirtæki. Árið 2010-2013 stundaði Margrét nám hjá Beverly Ryan (The Art League) í Bandaríkjunum. Margrét hefur haldið fjölda samsýninga í Bandaríkjunum, tekið þátt í viðburðum og haldið einkasýningar.

Þetta er fyrsta einkasýning hennar á Íslandi.

Verk Margrétar eru til sölu á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Sjá nánar um viðburðinn hér