Rjómabúið Erpsstaðir opnar skyrsýningu og skyrbar!

Er skyr bara skyr?
Hefurðu smakkað skyr úr ísvél?
Rjómabúið Erpsstaðir opnar skyrsýningu og skyrbar!

Rjómabúið Erpsstaðir hefur nú í nokkur ár framleitt skyr upp á gamla mátann, kynnt framleiðsluaðferðina og sagt ferðamönnum sögu skyrsins. Núna er verið að leggja lokahönd á uppsetningu á sögusýningu, fræðslusetri og smakkbar á hinu hefðbundna íslenska skyri og var formleg opnun 8. apríl.

Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við Matís út frá hugmyndafræði ÉCONOMUSÉE® samtakanna, svokallaðra hagleikssmiðja. Hönnuðurinn Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir er listrænn stjórnandi verkefnisins og fékk hún myndlistarmanninn Auði Lóu Guðnadóttur til liðs við sig við uppsetningu sýningarinnar.

Viðurkenning á gæðum og þekkingu

Við opnunina gengur Rjómabúið Erpsstaðir inn í alþjóðlegu samtökin ÉCONOMUSÉE® network. ÉCONOMUSÉE® network eru samtök handverksfyrirtækja sem viðurkennd eru fyrir gæði sín og sérstöðu, og opna dyr sínar fyrir almenningi til að deila ástríðu sinni á viðfangsefni sínu og arfleifð. Um 80 handverksfyrirtæki í átta löndum eru nú aðilar að samtökunum. Á Íslandi höfum við kallað slík fyrirtæki hagleikssmiðjur og eru þjár aðrar fyrir hér á Íslandi:

  • Sútunarverksmiðjan Gestastofa Sútarans á Sauðárkróki
  • Leir 7, leirverkstæði
  • Smávinir tréskurður í Stykkishólmi

Markmið ÉCONOMUSÉE® Network er að halda í heiðri handverki og handverksþekkingu samhliða því að tryggja hagvöxt í dreifbýli. Matís er fulltrúi ÉCONOMUSÉE® network á Íslandi.