Morra - uppskeruhátíð

Signý Þórhallsdóttir hefur dvalið í Hönnunarsafni Íslands undanfarna mánuði með vinnustofu þar sem hún hefur verið að þróa og framleiða vörur úr silki og ull fyrir vörumerki sitt Morra. Nú fer að koma að lokum vinnustofudvalarinnar og því verður skálað fyrir Signýu og haldin uppskeruhátíð föstudaginn 20. sept. kl. 17.30-19.00.
Til viðbótar við silkislæðurnar hafa nú bæst dásamlegar ullarslæður og sparisloppur þar sem íslenska flóran er enn í aðalhlutverki.

Allir velkomnir.

Sjá nánar um uppskeruhátíðina hér