Litróf íslensku ullarinnar

Sýning í Norræna húsinu

Markmið sýningarinnar er að sýna fjölbreytilega tóna og liti  íslensku ullarinnar á hvetjandi hátt . Listakonan Astrid Skibsted gerir það með einföldum vafningum af garni á tré sem mynda grafísk form. Formin minna helst á málverk sem Íslendingum eru mjög kunnug. En listakonan er undir miklum áhrifum frá Louisu Matthíasdóttur og litríkri túlkun hennar á íslensku landslagi.

Um listamanninn
Astrid Skibsted er menntaður textílhönnuður og myndlistarmaður búsett í Árhúsum í Danmörku.  Hún vinnur mikið með vefnað, textíl hönnun og innanhúshönnun fyrir auglýsingaskrifstofur auk þess sem hún starfar sjálfstætt sem listakona. Astrid hefur verið í nánaum tengslum við Ísland í 14 ár þar sem hún er gift Íslendingi.

www.astridskibsted.dk

Instagram: @astridskibsted

Vefur Norræna hússins: www.nordice.is