Listhandverksmarkaður á Frue Plads

Hinn árlegi listhandverksmarkaður samtakanna Danske Kunsthåndværkere og Designere sem haldinn er á torginu við Frúarkirkjuna (Frue Plads) í Kaupmannahöfn er um helgina

Þetta er í 34. sinn sem markaðurinn er haldinn sem er einn sá stærsti á norðurlöndunum. Allir meðlimir Danske Kunsthåndværkere og Designere geta tekið þátt í markaðinum og eru þátttakendur vel á annað hundrað listiðnaðarmenn og hönnuðir. Gestir geta fundið skartgripi, trémuni, verk í leir og gler, vefnað, leðurvörur og margt fleira á Frue Plads um helgina.
Á opnunardeginum þann 10. ágúst verða verðlaun markaðarins „Håndfuglen“ afhend en þau eru veitt fyrir besta einstaka hlutinn og bestu nýju vöruna.

Það er ókeypis aðgangur að svæðinu og opnunartíminn er eftirfarandi:
Fimmtudagur 10/8 kl. 12-19 
Föstudagur 11/8 kl. 10-19 
Laugardagur 12/8 kl. 10-16
 
Lesa má nánar um Frue Plads markaðinn og sjá kynningu á öllum þátttakendum á http://dkod.dk/