LÍFFÆRIN

LÍFfærin er sýning nýrra glerlíffæra í Ásmundarsal. Sýningin er unnin í samstarfi Ásmundarsalar og Corning Museum of Glass, Siggu Heimis, Gagarín og fleiri listamanna sem sjálfir hafa gefið líffæri og þegið og gæða hin köldu glerlíffæri lífi með ljósi og hljóði.

Tilefni sýningarinnar er að um áramótin voru sett lög á Íslandi um að allir landsmenn verða líffærgjafar. Við getum bjargað lífi annarra með því að gefa þeim líffæri, í öðrum tilvikum getum við lengt ævi fólks og bætt heilsu þess og líðan með líffæragjöf. Árlega þarfnast 25-30 sjúklingar líffæra-ígræðslu á Íslandi og þeim hefur fjölgað á undanförnum árum.

Corning Museum of Glass var stofnsett 1951 og er í New York–ríki. Það er stærsta glerlistasafn í heimi. Safneignin telur um 45.000 glerhluti, sá elsti er yfir 3.500 ára. Safnið sýnir alla sögu og virkni glers; frá listrænu gildi til tæknilegrar nýsköpunar.

Grunnefni glers er kísill sem er eitt algengasta efni jarskorpunar og Íslendingar þekkja vel. Þrátt fyrir það er hverfandi lítið unnið með gler hérlendis.

Á sýningunni má sjá eiginleika og möguleika glers enda gríðarlega spennandi efni. Listamenn og hönnuðir hafa töfrast af þessu efni og unnið með frá örófi alda og svo verður um alla framtíð.

Aðferðin við að munnblása gler hefur ekkert breyst í hundruði ára og öll tæki og tól þau sömu. Einfaldleikinn þar er sláandi heillandi, sérstaklega í heimi tækninýjunga.

Glerblásarar CMOG eru með þeim fremstu í heimi og krefst slík kunnátta margra ára þjálfunar, einbeitingar og snerpu. Verkin á sýningunni kröfðust að lámarki þriggja blásara samtímis.

Sýningin LÍFfærin í Ásmunarsal stendur til 17. febrúar.

Ásmundarsalur er opinn daglega, virka daga frá 8–5, 9–5 um helgar. Á föstudögum er opið til 8.