Jónsmessugleði Grósku: þátttökuboð

Jónsmessugleði Grósku: þátttökuboð

Nú er hafinn undirbúningur að Jónsmessugleði Grósku sem haldin verður í ellefta sinn fimmtudaginn 20. júní 2019 kl. 19.30-22. Undanfarin ár hefur Gróska boðið öðrum myndlistarmönnum að taka þátt og í ár verður framhald á því.

Gróska er félag myndlistarmanna í Garðabæ sem á hverju ári stendur fyrir myndlistarsýningum og viðburðum. Umfangsmest er Jónsmessugleði sem haldin er við Strandstíginn í Sjálandshverfi Garðabæjar. Þar eru jafnan fjölbreytt listaverk til sýnis í töfrandi umhverfi og auk sýningarinnar eru margir aðrir listviðburðir á dagskrá. Einkunnarorð Jónsmessugleði Grósku eru: gefum, gleðjum og njótum og slá þau tóninn fyrir þá notalegu og skemmtilegu stemningu sem ríkir um kvöldið. Að venju lýkur gleðinni svo með eftirminnilegum gjörningi.

Þúsundir gesta streyma á Jónsmessugleði Grósku á hverju ári og þetta er því kjörið tækifæri fyrir listamenn til að koma sköpun sinni á framfæri og kynnast öðrum listamönnum.

 

Hagnýtar upplýsingar

Þátttökugjaldið er 3500 kr. en í því er innifalinn sérhannaður strigi fyrir þá sem eru með myndverk og lokahóf þar sem sýnendum ásamt mökum er boðið upp á sælkerasúpu að sýningu lokinni.

Eins og áður munu allir sýnendur taka þátt í sameiginlegri undirbúningsvinnu. Því er sýnendum skipt niður í ákveðnar framkvæmdanefndir þar sem hver nefnd hefur fyrirfam gefinn verkefnaramma.

Í ár er þemað „Þræðir“. Flestir hafa nýtt sér fyrrnefndan sérsniðinn striga til að skapa tvívíð lárétt myndverk (landskapeformat sa. 94x127 sm) en striginn er settur upp á milli tveggja stólpa/staura. Við hvetjum þó einnig til fjölbreytileika og því eru skúlptúrar, innsetningar eða aðrir listmiðlar einnig mjög velkomnir.

Hér fylgja með linkar á stemningsmyndir frá Jónsmessugleði fyrri ára fyrir þau sem ekki hafa upplifað eða tekið þátt í þessari snilld.

https://www.facebook.com/…/photos/d41d8cd9/1962883460428806/

https://www.dv.is/…/folk/2017/07/08/gefum-gledjum-og-njotum/

https://www.facebook.com/pg/Gardabaer.Iceland/photos/?tab=album&album_id=1524492237601266

https://www.facebook.com/Gardabaer.Iceland/posts/1159134044137089

Velkomið er að hafa samband við stjórn Grósku til að fá frekari upplýsingar ef þurfa þykir.

Skráning fer fram á eftirfarandi link og lýkur 27. maí 2019.

https://docs.google.com/…/1FAIpQLSeCuvegjqRQj02rSK…/viewform

Hægt er að nálgast strigann 21. maí kl. 17-18 og 28. maí kl. 19-19.30 í Gróskusalnum, á 2. hæð á Garðatorgi 1 í Garðabæ. Skráningargjaldið greiðist við afhendingu strigans eða með því að millifæra á reikning Grósku 0546-26-010310, kt. 520510-0440.

Gróska hlakkar til að sjá hvort slegið verði þátttökumet í ár. :-)