Hvað er knipl?

Í kvöld fimmtudaginn 8. apríl kl. 20 er prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélagsins í streymi á netinu (sjá tengil á viðburðinn hér).

Títuprjónar og kefli, krossbragð og snúningur? Út á hvað gengur knipl og hvernig er yfirhöfuð hægt að skilja þetta? Knipl er tilkomumikið handverk sem lítur út fyrir að vera óyfirstíganlega flókið en er í raun einfalt.

En hvað er eiginlega knipl? Kristín Vala og Snæfríður leiða okkur í gegnum alla þessa þræði og sýna að það er vit í vitleysunni.

Sjá nánar hér.