Hugarflug í LHÍ

Hugarflug 8. - 9. febrúar 2018

 
Hugarflug er árleg ráðstefna Listaháskólans um rannsóknir á fræðasviði lista og verður nú haldin í sjöunda sinn. Ráðstefnan skapar vettvang fyrir faglega og gagnrýna umræðu um þekkingarsköpun í listum og menningu, með áherslu á þann fjölbreytileika sem einkennir nálgun, aðferðir, efnistök og miðlun á sviðinu. Eitt helsta markmið ráðstefnunnar er bjóða upp á öruggt rými jafningja þar sem óhætt er að spyrja opinna spurninga, framkvæma tilraunir og setja fram ókláraðar rannsóknarniðurstöður. 
Hugarflug 2018 snýst fyrst og fremst um hvernig skapa megi vettvang sem sannarlega endurspeglar viðfangsefni starfsfólks og nemenda skólans, en ekki síður þeirra sem starfa á vettvangi lista og hönnunar. Þannig hefur ráðstefnan ekkert þema að þessu sinni og enga yfirskrift. Þess í stað er kapp lagt á að ráðstefnan verði þverfaglegur vettvangur lista og hönnunar, sem hvetur kennara, nemendur og starfandi listamenn og hönnuði til að deila sínum spurningum, þekkingu og iðkun, og fléttar þau saman við hvort annað.
 
Ráðstefnan fer fram í húsnæði listkennslu- og myndlistardeilda skólans, Laugarnesvegi 91, Reykjavík. 
Ráðstefnunefnd
Alexander Roberts, formaður, sviðslistadeild
Bjarki Bragason, myndlistardeild
Gunndís Ýr Finnbogadóttir, listkennsludeild
Thomas Pausz, hönnunar- og arkitektúrdeild
Þorbjörg Daphne Hall, tónlistardeild
 
Heimsækið heimasíðu Hugarflugs til að fá nánari upplýsingar dagskrá Hugarflugs sem innifelur m.a. málstofur, gjörninga, fyrirlestra, sýningar, tónlistarflutning og vinnusmiðjur: http://www.lhi.is/hugarflug
 
Verkefnastjóri Hugarflugs er Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir- olofhugrun@lhi.is