HönnunarMars - frestað fram í júní 2020

HönnunarMars frestað fram í júní 2020

Tilkynning frá HönnunarMars:

Í ljósi fordæmalausra aðstæðna hefur stjórn og stjórnendur HönnunarMars ákveðið að færa hátíðina fram í lok júní. Ákvörðunin er tekin að vel í grunduðu máli og í samtali við þátttakendur og samstarfsaðila. Það er forgangsatriði að allir leggist á eitt við að hefta frekari útbreiðslu veirunnar sem nú herjar á samfélagið.

HönnunarMars er 12 ára hátíð sem fæddist í miðju hruni og hefur frá upphafi verið boðberi bjartsýni, nýsköpunar og nýrra leiða. Hann mun því koma inn með krafti, veita innblástur, gleði og varpa ljós á kraumandi skapandi kraft hönnunarsamfélagsins hér á landi.

Það eru bjartari tímar framundan, mætum tvíefld til leiks með hækkandi sól!

Frekari upplýsingar er að vænta síðar.

Með góðum kveðjum
Stjórn og starfsfólk HönnunarMars

Smellið hér til að skoða vef hátíðarinnar.