Hægt er að sækja um ferðastyrki í Hönnunarsjóð

FERÐASTYRKIR

Opið er fyrir umsóknir  í Hönnunarsjóð til 4. febrúar 2020
 
Ferðastyrkjum er ætlað að auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. 
Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Veittir verða allt að 15 ferðastyrkir í hverri úthlutun að upphæð 100 þúsund hver.

Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast á vefsíðu sjóðsins hér. 

Opið er fyrir umsóknir til 4. febrúar 2020

Nánari upplýsingar má finna á vef sjóðsins hér en ef þig vantar aðstoð með umsóknina eða ert með spurningar sendu endilega póst á sjodur@honnunarmidstod.is