Tvennd

Sýningin Tvennd er samstarfsverkefni þeirra æskuvinkvenna Ragnheiðar Ragnarsdóttur arkitekts og myndlistarmanns og Sigríðar Ágústsdóttur leirlistarmanns og leiðsögumanns.

Sýningin er framhald sýningar þeirra í Safnasafninu í Eyjafirði, sumarið 2017.

"Samvinna okkar er byggð á sameiginlegri reynslu, gömlum kynnum, auknum þroska og aldri. Leiðir okkar í listinni lágu saman í listaskóla í Suður- Frakklandi og hafa verið í austur og vestur, töluvert andstæðar, hvað efni hugmyndir og handbragð snertir. Með tímanum höfum við fundið taktinn, sáttar við að láta sköpunarkraftinn ráða för í sjálfu ferlinu. Efniviðurinn og átökin við formið nægja okkur að lokapunkti. Vinnum í sundur, en þegar saman er komið, finnst okkur sem verkin haldist í hendur."

Á sýningunni Tvennd eru olíumálverk Ragnheiðar og handmótuð leirverk Sigríðar.

Sýningin er Borgarbókasafni Spönginni stendur til áramóta.

Nánari upplýsingar um sýninguna Tvennd má finna hér