Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands

Á hverju ári eru Hönnunarverðlaun Íslands veitt fyrir þau verk sem þykja framúrskarandi á sviði hönnunar og arkitektúrs. 

Hönnunarverðlaun Íslands eiga að varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Vægi hönnunar sem partur af menningu, samfélagi og viðskiptalífi er alltaf að aukast og beina hönnunarverðlaunin sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. „Verðlaunin eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. Hönnuðir þurfa að vera félagar í einu af aðildarfélögum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. Ný verk eru verk sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þremur árum fyrir afhendingu verðlaunanna.”

Við val á verðlaunahafa er verið er að leita að framúrskarandi verki, eða safni verka. Verkið/verkin þurfa að vera einstök, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu og fagmennsku í vinnubrögðum.

Hönnunarverðlaun Íslands eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, sem hafa verið veitt af ráðherra ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunar.

Tilnefningarnar í ár eru þrjár:

  1. Peysa með öllu eftir textílhönnuðinn Ýr Jóhannsdóttur sem hannar undir nafninu Ýrúrarí.
  2. Drangar eftir Studio Granda.
  3. Flotmeðferð eftir fyrirtækið Flothettu, hannað af Unni Valdísi Kristjánsdóttur. 

Þá er veitt viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun en sú viðurkenning var fyrst gefin árið 2015.

„Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.”

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.

Verðlaunaafhendingin fer fram með rafrænum hætti, hér, þann 29. janúar n.k. kl. 11.00.