Sýningarlok - Skál á viku

Sýningunni Skál á viku sem opnuð var í húsnæði HANDVERKS OG HÖNNUNAR á Eiðistorgi þann 17. janúar lýkur á föstudaginn.

Á sýningunni er sýndur afrakstur verkefnis Andra Snæs Þorvaldssonar Skál á viku, en allt árið 2018 renndi Andri Snær eina skál á viku,  alls 52 skálar. Skálarnar eru mjög fjölbreyttar bæði hvað varðar form og efni. 

Lokadag sýningarinnar, föstudaginn 8. febrúar mun Andri Snær verða á staðnum milli kl. 15 og 16 og spjalla við gesti. 

Þeir sem hafa keypt skálar og eiga kost á því að koma á þessum tíma geta fengið sínar skálar afhentar. Seldar skálar verða annars afhentar eftir samkomulagi að sýningu lokinni.

Opið er virka daga kl. 9.00 - 16.00. 

Kíktu á SKÁL Á VIKU á Instagram

Kíktu á SKÁL Á VIKU á Facebook