Skál á viku - sýningaropnun

Fimmtudaginn 17. janúar, kl. 16.00 opnar sýningin Skál á viku í húsnæði HANDVERKS OG HÖNNUNAR á Eiðistorgi.
Á sýningunni verður sýndur afrakstur verkefnis Andra Snæs Þorvaldssonar Skál á viku, en allt árið 2018 renndi Andri Snær eina skál á viku,  alls 52 skálar.
Sýningin mun standa til og með 8. febrúar.
Opið er virka daga kl. 9.00 - 16.00. 

Kíktu á SKÁL Á VIKU á Instagram

Kíktu á SKÁL Á VIKU á Facebook