Saumaklúbbur Karólínu - prjónakaffi í streymi

Prjónakaffi Heimilisiðnaðarfélags Íslands í streymi fimmtudagskvöldið 6. maí kl. 20.

Fimmtudaginn 6. maí kl. 20 verður prjónakaffi í streymi (sjá viðburð hér) þar sem sagt verður frá krosssaumi Karólínu. Krossaumur Karólínu eru ótrulega falleg og skemmtileg útsaumsverkefni við flestra hæfi. Farið verður í leiðbeiningar um hvernig best er að vinna krosssaumsverkefni af þessu tagi, gefin góð ráð og kennd ýmis trix. Einnig verður sýnt hvernig útsaumurinn kemur út með því að setja hann upp í púða.

Umsjón hafa Lára Magnea og Margrét Valdimarsdóttir (sjá nánar hér).

Krossaumur Karólínu eru falleg og skemmtileg útsaumsverkefni við flestra hæfi. Þetta kvöld verða kynntar þrjár fyrstu útsaumspakkningar af þeim tólf sem koma á markað á næstu vikum. Munstrin eru frá Karólínu Guðmundsdóttur vefara en það er Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuður sem hefur valið munstur og endurhannað í takt við tímann. Farið verður í leiðbeiningar um hvernig best er að vinna krosssaumsverkefni af þessu tagi, gefin góð ráð og kennd ýmis trix. Einnig verður sýnt hvernig útsaumurinn kemur út með því að setja hann upp í púða. Þátttakendur geta keypt útsaumspakkningarnar í verslun HFÍ en sala hefst mánudaginn 3. maí.

Karólína vefari er heiti sýningar sem opnar í Árbæjarsafni nú á vordögum. Í tilefni af sýningunni hefur verið valin fjöldi munstra frá Karólínu og þau sett í útsaumspakkningar. Verkefnið er samstarfsverkefni HFÍ og Árbæjarsafns og Saumakassans (Lára Magnea Jónsdóttir textílhönnuðar).

Karólína Guðmundsdóttir (1897-1981) lærði ung vefnað í Kaupmannahöfn og rak um áratugaskeið Vefnaðarstofu við Ásvallagötu í Reykjavík. Þar var meðal annars um áratugaskeið framleiddur ofinn ullarjafi í ýmsum litum til útsaums. Karólína seldi einnig útsaumspakkningar sem samanstóðu af jafa, munstri með skýringum og útsaumsgarni. Útsaumspakkningar Karólínu nutu mikilla vinsælda, veggteppi og púðar ættaðir frá henni prýddu mörg íslensk heimili. Karólína var formaður Heimilisiðnaðarfélagsins á árunum 1923-1927.

Samstarfsaðili: Borgarsögusafn - Árbæjarsafn

→ Hér má finna hlekk á viðburðinn og streymið