Íðorð í prjóni

Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands laugardaginn 18. janúar kl. 12.00-13.30.

Íðorðanefnd í hannyrðum hefur starfað innan Stofnunar Árna Magnússonar síðastliðin fimm ár.  Nýlega var birt íðorðasafn fyrir prjón á netinu undir vefslóðinni idord.arnastofnun.is. Markmiðið með íðorðasafninu er að samræma orðanotkun innan fagsins, bæði hjá áhuga- og fagfólki, m.a. vegna útgáfu á bókum, uppskriftum og birtinga á netinu. Í kynningunni verður farið yfir innihald og notkun íðorðasafnsins, s.s. uppsetningu, orðflokka, skilgreiningar og skýringar.

Nefndaraðilar sem standa að kynningunni eru Ásdís Jóelsdóttir, Guðrún Hannele Henttinen og Herborg Sigtryggsdóttir.

Aðgangur er ókeypis.

Sjá nánar hér