Helga R. Mogensen - Klimt02

Helga R. Mogensen skartgripahönnuður er orðin meðlimur í Klimt02 sem er alþjóðlegur gagnagrunnur. Markmið Klimt02 er að veita innsýn í samtímaskartgripahönnun um allan heim og auka aðgengi að framúrskarandi sköpun.

Hér er hægt að skoða prófíl Helgu í gagnagrunninum.

Helga útskrifaðist sem skargripahönnuður frá Listaháskólanum í Edinborg árið 2007. Hún sækir innblástur í hafið en á sumrin eyðir hún löngum tímum norður á Ströndum við fjörulall. Rekaviður, silfur og sköturoð eru aðal hráefnin sem Helga notast við en með þeim nær hún fram sínum eigin stíl, sem einkennist af einskonar framköllun á teikningu í gegnum þrívíða hluti. Allir hlutirnir eru handgerðir á vinnstofu Helgu í Reykjavík.