Handverkshátíðin 2019

Nú er hægt að sækja um þátttöku á Handverkshátíð í Hrafnagili 2019.

Hátíðin fer fram 8.-11. ágúst að Hrafnagili eins og venjulega og eru skipuleggjendur og stjórnendur á fullu í undirbúningi.

Rafrænt umsóknareyðublað má nálgast hér.

Umsóknarfresturinn rennur út 30. apríl og niðurstaða valnefndar mun liggja fyrir þann 14. maí 2019.

Öllum umsóknum verður svarað.