100% ULL

Land #Earth matters eftir Bryndísi Bolladóttur
Land #Earth matters eftir Bryndísi Bolladóttur

Sýningarlok og leiðsögn 31. janúar 2021

Birgir Örn Jónsson sýningarstjóri og Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands sjá um leiðsögnina.
Vegna fjöldatakmarkana er mælt með því að kaupa miða á viðburðinn fyrirfram.
Hér er tengill á miðasöluna:
https://tix.is/is/event/10879/
 

Ull er klassískur, náttúrulegur efniviður með óendanlega möguleika. Á þessari sýningu getur að líta dæmi um vörur úr íslenskri ull sem hönnuðir og handverksfólk er að fást við í dag.

Það eru skiptar skoðanir á íslensku ullinni. Sumum finnst hún ómöguleg en aðrir dásama hana og hafa lýst yfir að erlend ull sé steingeld í samanburði. Hvað sem því líður þá skiptir máli að geta unnið með efnivið úr sínu nánasta umhverfi.
Ullarvinnsla hefur löngum verið samofin handverks- og iðnaðarsögu þjóðarinnar. Í dag telur íslenski sauðfjárstofninn hálfa milljón kindur Um 750 tonn af ull eru nýtt í ullarframleiðslu á hverju ári.
Ullarvörur voru um langt skeið ein helsta útflutningsvara Íslendinga og á miðöldum var vaðmál, sem ofið var úr ull og mælt í álnum, mikilvægur gjaldmiðill. Enn í dag er talað um að komast í álnir í þeirri merkingu að verða efnaður.
Vinnsla á ull fór fram á heimilum samhliða bústörfum til loka 19. aldar þegar hún færðist yfir í vélvæddar verksmiðjur. Á 20. öld var blómleg framleiðsla á fatnaði og vefnaðarvöru á Íslandi. Með breyttri heimsmynd færðist slík framleiðsla til annarra heimshluta þar sem framleiðslukostnaður er lægri. Í dag sér fyrirtækið Ístex um að þvo, meðhöndla og spinna um 99% af allri íslenskri ull en minni og sérhæfðari ullarvinnslur eins og Uppspuni og Þingborg hafa skotið upp kollinum á seinni árum.
Þátttakendur sýningarinnar koma frá ólíkum sviðum hönnunar og handverks en eiga það sameiginlegt að vinna af hugvitssemi með íslensku ullina í sínum afurðum.

Ásthildur Magnúsdóttir, vefari
Magnea Einarsdóttir, fatahönnuður
Verslunin Kormákur & Skjöldur
Fyrirtækið Kula by Bryndís, sem sérhæfir sig í hljóðvistarlausnum
Samstarfsverkefnið Ró
Ullarvinnslufyrirtækið Ístex

Sýningarstjórar: Birgir Örn Jónsson og Signý Þórhallsdóttir

Vefur Hönnunarsafns Íslands