Fríða Jónsdóttir gullsmiður hlaut Skúlaverðlaunin 2009

Fríða Jónsdóttir gullsmiður hlaut Skúlaverðlaunin 2009 fyrir verkið “Fjölin hennar ömmu”
Fríða Jónsdóttir gullsmiður hlaut Skúlaverðlaunin 2009 fyrir verkið “Fjölin hennar ömmu”

Verðlaun fyrir besta nýja hlutinn


Fríða Jónsdóttir gullsmiður hlaut Skúlaverðlaunin 2009 fyrir verkið “Fjölin hennar ömmu” á sýningunni HANDVERK OG HÖNNUN í Ráðhúsinu. Fríða hannaði skartgripalínu sem byggir á munstrum í fjöl sem amma hennar skar út. Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og framkvæmdastjóri samtakanna Jón Steindór Valdimarsson afhenti þau í gærkvöldi.
Efnt var til verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn meðal þátttakenda í sýningunni. Rúmlega fjörutíu tillögur bárust frá 22 aðilum. Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.
Fagleg valnefnd sem Anna Snædís Sigmarsdóttir kennari í Tækniskóla Íslands og myndlistarmaður og Helga Björg Jónasardóttir vöruhönnuður skipuðu, valdi sigurvegara.
Niðurstaðan er veita tvær viðurkenningar auk Skúlaverðlaunanna. Inga Elín fékk viðurkenningu fyrir verkið “skeljar” sem er kertastjaki úr þunnu postulíni og Margrét Guðnadóttir fékk viðurkenningu fyrir verkið “Hangandi hnoðri” sem er spiladós úr íslenskri óklipptri gæru. 

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins